Færsluflokkur: Bloggar
10.7.2008 | 09:28
Einfalt og gott
Það verður aðsegjast að þetta lítur út fyrir að vera bráðsnjöll lausn á því sem annars gæti verið mikið vandamál.
Einföldustu lausnirar eru yfirleitt bestar. Þetta leiðir samt hugann að því hve alverlegur sjúkdómur þetta er. Erfiður, bæði fyrir sjúklingana sjálfa náttúrulega og líka aðstandendur.
Eina athugasemd langar mig að gera við fyrirsögn fréttarinnar. Mér finnst jaðra við að vera ósmekklegt, og eiginlega beinlínis rangt samkvæmt mínum orðskilningi, að tala um gildru í þessu samhengi. Gildra finnst mér vera eitthvað sem notað er til að veiða í og bráðin festist í. Löggan á það til líka að leggja gildrur fyrir sína "kúnna" og festa þá jafnvel í eigin lygavef.
Þarna hefð mér þótt smekklegra og lýsa betur tilgangi skýlisins að segja: Gerfibiðskýli er stoppistöð fyrir sjúklinga. Þetta er jú til að stoppa sjúklingana svo þeir fari ekki lengra ekki satt.
![]() |
Gervibiðskýli er gildra fyrir sjúklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 00:17
Ekki einfalt.
Þetta getur verið ákaflega bagalegt að lenda í svona stöðu en það getur ekki verið einfalt að komast svona í þjóðskránna eftirá.
Það má ekki vera of auðvelt en samt ætti að vera einfalt að sanna að þetta sé ekki stolið eða keypt barn með DNA rannsókn.
![]() |
Því miður þú ert ekki til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 12:05
Er ekkert að marka Útlendingastofnun?
Það kom fram í fréttatilynningu eða greinargetð stofnunarinnar að umókn Paul Ramses um hæli heði verið send áfram til Ítalíu samkvæmt reglum þar um því þriggja daga frestur til athugasemda hafi ekki verið nýttur. Þar hafi hún verið móttekin og síðan samþykkt.
Paul sótti um hæli á Íslandi 31.01.2008 og þann sama dag var tekin af honum hælisskýrsla hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Þar var honum gefinn 3 daga frestur til að andmæla framsendingu beiðnar sinnar um hæli. Þar var hún samæykkt 31. mars samanb. meðfylgjanidi tilvitnun í greinargerð sofnunarinnar. (leturbr. er mín)
"Hinn 11.02.2008 voru send tilmæli til Ítalíu, um að taka við beiðni Pauls um hæli. Ítalir samþykktu beiðnina 31.03.2008. Grundvöllur þessa er að Ítalir höfðu veitt Paul vegabréfsáritun inn á Schengen svæðið. Rangt er að Ítalir beri ábyrgð á málinu vegna millilendinga þar í landi eins og ítrekað hefur komið fram."
Nú spyr ég: Er einhver misskilningur í gangi milli Útlendingastofnunar og Ítalskra yfirvalda eða er greinagerðin röng?
![]() |
Óvissuástand hjá Paul Ramses |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2008 | 11:27
Hvar er rökstuðningurinn
Enn og aftur kall ég eftir rökstuðningi Útlendingastofnunar fyrir þessari aðgerð.
Eina sem hefur komið fram er að þetta er löglegt. Um það hafði ég nú svosem ekki stórar efasemdir. Hitt er líka ljóst að það hefði verði löglegt að veita honum hæli. Það var hinsvegar ekki gert og hlýtur að vera ákvörðun tekin á einhverjum forsendum.
Það er alger forsenda til að geta tekið upplýsta afstöðu að fá að vita málavexti og rök stofnunarinnar fyrir þessari afstöðu.
Ég er ekki að kalla eftir einhverjum "af því bara" rökstuðningi eins og "þetta er venjan", "þetta var gert síðast þegar sótt var um hæli" eða "af hverju ekki"
Það hljóta að vera einhver rök fyrir því að þessum flóttamönnum er vísað úr landi á sama tíma og verið er að sækja aðra til að dvelja hér.
HVAR ERU ÞAU RÖK?
![]() |
Undirskriftarlisti til stuðnings Ramses |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.7.2008 | 10:24
Kaup og sala atkvæða
Þó að við getum öll verið sammála um að það nái ekki nokkurri átt að leifilegt sé að selja atkvæði sitt í kosningum með svona binum hætti erum við á svolítið gráu svæði. Hvað er það annað en atkvæðakaup eða a.m.k. tilraun til þess þegar gefnar eru stórar fjárhæðir í kosningasjóði.
Mér fannst þetta koma nokkuð skýrt fram hjá Demokrötunum í Bandaríkjunum núna. Eftir að Obama náði að safna mun meira fé á fjáröflunarsamkomum en Hillari fór honum að ganaga betur í atkvæðaveiðum.
Vissulega eru dæmi um hið gagnstæða og kanski nærtækast að taka forsetaframbjóðandann Ástþór sem uppskar ekki miðað við kostnað.
En þegar tveir eða fleiri frambærilegir frambjóðendur keppa virðist fjárhagurinn geta ráðið úrslitum.
![]() |
Kærður fyrir að selja atkvæði sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2008 | 20:48
Hér vantar meiri upplýsingar
Samkvæmt þessari fréttatilkynningu er þessi maður í slæmum málum ef hann verður sendur aftur til Kenía. Íslendingar aftur í slæmum málum ef eitthvað kemur fyrir hann þar. Við skulum öll vona að það verði ekki.
Það hefur komið fram annars staðar að hann sé nýbúinn að eignast barn hérna en samkvæmt þessari tilkynningu kom hann hingað til lands í janúar á þessu ári. Því gef ég mér að hann hafi komið með sína barnsmóður barnshafandi mað sér þegar hann kom.
Hér finnst mér vanta upplýsingar. Af hverju er honum einum vísað úr landi en ekki allri fjölskyldunni? Hvað hefur hann gert sem verðu þess valdandi að hann er handtekinn á heimili sínu? Ekki vil ég trúa því að það sé viðtekin venja við útlendinga sem heimsækja okkur eða er það bara af því hann sótti um pólitíkst hæli. Er barnsmóir hans konan hans, íslensk eða líka af erlendu bergi brotin?
Ég er algerlega ósammála því að ekki þurfi rökstuðning fyrir þessari ákvörðun og vil endilega heyra hann áður en hægt er að taka afstöðu til þess hvort ákvöðunin um að vísa manninum úr landi er eina vitið eða algerlega út úr korti.
Vandamálið er náttúrulega að hann er farinn samkvæmt þessari fréttatilkynningu og því þarf skjót viðbrögð ef eitthvað á að vera hægt að gera í málinu.
![]() |
Mótmæli skipulögð fyrir utan dómsmálaráðuneytið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.5.2008 | 09:59
Hver er sinnar gæfu smiður.
Ég hefséð margt vittlausara hér í bloggheimum en þennan pistil: http://velgengni.blog.is/blog/velgengni/#entry-543795
Mæli með því að fólk lesi þetta, stutt og laggott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 08:57
Eru engar kröfur gerðar til þeirra sem skrifa fréttir á mbl.is?
"Hústökumenn í Sydney í Ástralíu þurfa að yfirgefa hús sem annars hefði staðið autt í fimm ár því nú er komið að því að rífa það."
"Það verður synd að sjá á eftir þessu húsi," er haft eftir Amy Rush "
Á að skilja þetta þannig að húsið hefði staðið autt ef hústökumenn hefðu ekki þurft að yfirgefa það? Hvar eru þá hústökumennirnir? Og hvernig vita mennað það hefði komið til með að standa autt í fimm ár?
Það kann að vera að það sé synd að rífa þetta hús og hugsanlegt líka að það sé eftirsjá að því. Jafnvel möguleiki að það sé sárt að sjá á eftir því en þessi samsuða er út í hött sem er höfð er eftir manninum.
![]() |
Ísland verður jafnað við jörðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2008 | 23:57
Samhengið
ÉG skil ekki samhengið í síðustu málsgreininn miðað við fréttina.
"Hæstiréttur klofnaði í málinu og taldi neinn dómari af fimm, Jón Steinar Gunnlaugsson, að Portus þurfi að una því að Fasteign og Klasi fái aðgangur að samningi Portus við Austurhöfn-TR."
Getur einhver hjálpað? Væntanlega á þetta að vera einn dómari af fimm en það passar samt ekki við fréttina. Á að vera þarna einhvers staðar lítið ekki ?
![]() |
Verða að veita aðgang að samningi um tónlistarhús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 09:40
Þráhyggja?
Ég held að bílstjórarnir okkar séu komnir út í öngstræti með þessi mótmæli sín. Það er verið að vinna í hvíldartímaálum þeirra en olíuverðið er ekki á færi okkar Íslendinga að breyta. Hvernig væri að beina þessum mótmælum að Sameinuðu Arabísku furstadæmunum. Það er bara enginn þaðan á leið um suðurlandsveginn núna og því eru þessi mótmæli tilgangslaus, nema til að vekja andúð á aðgerðum bílstjóranna.
Að fara að fella ekdsneytisgjaldið niður þýddi bara að það yrði að taka peningana í viðhald veganna anars staðar sem væri óskyndamlegt. Það er eðlilegt að þeir sem nota vegina greiði fyrir þá.
Hlutfall eldsneytisgjaldsins í bensín og olíuverðinu hefur farið stöðugt lækkandi. Ef eitthvað er þyrfti að hækka það til að mæta gríðarlega auknu álagi á vegina eftir að flutningabílum fjölgaði svona við að leggja niður sjóflutninga innanlands.
![]() |
Bílstjórar taka hvíldartíma" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)